Ingibjörg Ásta
30.12.2007 17:20:48 / inga

-

http://ingibjorgasta.blogg.is/

 

nennti ekki að vera með hérna síðu þannig að ég færði miig yfir í blogg.is ;d

Bara svo þið vitið ;d


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.11.2007 21:49:36 / inga

<33

Jææææja!

  Nokkrar myndir sem ég er búin að breyta fylgja þessu bloggi ;d

Okei, ætla að blogga smá, þótt að síðan sé svona biluð ;d en er að reyna að vinna í þessu og ætla bara að byrja upp á nýtt og svooona, gangi mér bara vel segi ég ;o

 

Allavega, alveg nóg búið að vera gera hjá mér síðustu daga,

Mamma fór til Dublin á fimmtudaginn, fyrir viku og þá var ég nánast ein heim, nema kannski á kvöldin.

Á Föstudaginn fór ég á ballið í Lundarskóla og það var bara fínt sko, en á laugardaginn hékk ég bara með Önnu, Bjögga, Óttari, Guðnýju og Auði sem var að vísu ekki mikið með okkur ;s

Horfðum á einhverjar myndir og svo fór ég bara heim í tölvuna til að verða 3 eða svo og svo bara að sofaaa.

Vaknaði við að Sunneva hringdi í mig um hálf 10 og fór svo bara í sturtu og svo var afmæli seinna um daginn hjá Einar Geir og Helga Þór ;d En svo komu Skarphéðinn, Eirin, Bjarmi, Sunneva, Kristian og Buster í heimsókn seinnipartinn.

Guðný kom svo bara til mín og við bara vorum eitthvað tjilla ;d hehe og svo kom Auður og vorum ennþá meira að tjilla og jáá, sumir voru á MSN að tala við ákveðna aðila !:‘‘d

Hehe þessi vika hefur verið bara skólii og svo eitthvað meira ;p kaffihús á þriðjudaginn með stelpuklúbbnum og læti ;d

 

Í dag var nææææs dagur, vaknaði um 8 og fór í sturtu og svo bara eitthvað að slappa af og fór svo í skólann um hálf 10 og fór í einn tíma og svo bara skólinn búinn ;d;d vá hvað það var nææs :D

Svo kom Svandís bara með mér heim  og við vorum bara í tölvunni, spjalla, taka myndir og breyta, og svo smá sofaaa ;d eða Svandís sá um þetta seinasta ;d

 

Allavega ætla að reyna að setja inn nokkrar myndir á síðuna núna og koma svo fleiri seinna ;d

 

Kveð í bili, Ingibjööörg Ásta ;d

Hahahahah ;''''d

» 8 hafa sagt sína skoðun

27.10.2007 12:37:48 / inga

bleeeh

Jæjjaaa. okei það er eitthvað að blog.central ! sjást engar myndir og svo þegar að ég reyni að færa þær þá koma þær ekki :s er að spá í að færa mig eitthvað annað, purfa blogg.is eða eitthvað ;d læt ykkur þá vita ;d

Heheh ;p

ekkert í fréttum svo ekkert blogg ;d

 

-Ingibjörg


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.10.2007 14:02:23 / inga

Jeii :d

,,Vá við erum eins og trúboðar á fylleríi !! ;'d"

 

 

Já okay, verð bara að byrja á að segja frá þessu, ég er komin með nýtt herbergiii :D:D

vá soldið ánægð með það kannskii ;p því að í hinu herberginu mínu var ég með rúm, náttborð og kommóðu og það var varla hægt að labba á gólfinu það var svo þröngt ! en núna í þessu herbergi er ég með það sama + hornskrifborð og tölvuna og það er alveg nóg pláss á gólfinuu :D

Hehe, já vorum svo að fá nýja tölvu og hún er sniild sko! geðveikt stór skjár, held ég 22 tommur eða svo, og geðveikt góðir hátalar sem eiga eftir að verða ofnotaðiir held ég ;p

Haha okey hætt að tuða um þetta ;d

Eeen, ekki marg búið að gerast, alltaf það saama um að vera, skóli, vinir, heimavinna og eitthvað þannig ;d

En já, föstudagurinn var fínn fór til tannsa og var heilar 8 mínútur inni hjá honum sem er soldið met, hef aldrei verið svona lengi hjá honum!, hehe þá er ég að meina þessum tannsa sem ég er hjá núna og er búin að fara til hans svona uuu, 3 eða 4 sinnum ;d og fer 2svar á ári ;d

Allavegaa, man ekki alveg jú, ég og Auður fórum til Svandísar að skoða nýja húsið hennar ;d sem er geðveikt flootttt :D

Svo komum við bara aftur til Akureyrar ;'d haha okay, af því að Svandís býr í Naustahverfi þá er alltaf eins og að maður sé að fara út í sveit eða eitthvað ;'d sry svandís ;d

Já og ég fór bara heim að borða og svo smá í tölvuna, svo komu Auður, Svandís og Guðný Helga og við fórum smá út, löbbuðum smá út og í strax. Já skemmtilegt það ;d ætla ekkert að vera fara nánar í það ;p

En svo bara labba til baka og fórum heim til mín að horfa á The Bratz ;d og svo fóru stelpurnar bara heim um 12.

En á laugardaginn var ég bara hérna heima að hjálpa til við að laga til og eitthvað þannig, og í gær líka, og að færa dót úr herberginu mínu yfir í nýja herbergiið ;d fékk það svo í gærkveldii ;d

En var bara eitthvað í tölvunni í gær, og ætlaði að fara sofa um 12 en gat bara engan vegin sofanað, en sofnaði eithvað um 2 leytið og mamma vakti mig held ég 20 mín yfir 8, takk fyrir !! Hehe , fór bara á fætur og borða og svo að klára að færa dót úr gamla herberginu mínu yfir í nýja ;d

Og svo sit ég hérna bara í nýju tölvunni að hlusta á tónlist, æðislegir hátalaraar ;d og bíð eftir að Anna komii ;d En það var frí í skólanum í dag ;d einhver skipulagsdagur eða eitthvað álíka ;d svo eru foreldraviðtöl á miðvikudaginn svo að það er líka ,,frí" þá en þarf að mæta korter í 9 ! ;d

En nenni ekki meira ! Bless!


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.10.2007 17:51:42 / inga

dúbbí dú ;p

halló, kæru álesendur;’d okay er það ekki alveg eins til og áheyrendur og áhorfendur? æji meina bæði eitthvað á og endur ?;’d smá pæling ;d

Okay, ætla að byrja að tuða að nýju, nennir örugglega enginn að lesa þetta sem ég er að skrifa..;d  allavega myndi ég ekki nenn að lesa þetta ef ég væri ekki að skrifa þetta? kannski? 

Raunveruleikurinn,  þeir sem eru í 10 bekk vita um hvað ég er að tala, fínn leikur þar sem að við eigum að sjá fyrir einni manneskju, láta hana mennta sig,  fá sér vinnu og passa að hún eigi nóg af mat og pengingum og svona. Mjög gaman eða svona já fínt ;d allavega.

  Var í gær í svona stelpuklúbb, mjöög gaman það, vorum að horfa á the secret ;d sumt mjög ólíklegt en ég veit ekki?Hahaha ;’d  Okay búið að veraaa svo ííííískalt úti núna og í gær var 10 bekkur með útileiki fyrir 8 og 9 bekk, og það var jaa, KALT allavega maður lifði þetta af og við fengum að fara inn klukkutíma fyrr og eitthvað ;d Var að stjórna kubb ;o fínt bara, sumir soldið hættulegir þegar að þeir voru að kasta og best var að vera bara ekkert mjög nálægt ;’d hahah  

En það eru bæðir kostir og ókostir við að það sé svona kalt, kosturinn er sá að þá fer að opna í fjallinuu ;d vá get ekki beðiiið ;p og svo ókosturinn sá að það er svooo kalt !En ekki eitthvað sem maður lifir ekki af ;d þarf bara að kaupa sér góða úlpu og snjóbuxur og þá er maður bara klár í slagiinn ;d 

En í dag var skóli líka, fínn dagur, soldið lengi að líða;s en allavega búin klukkan 1 tók bus og fór til afa míns ;* og var þar til 3 og fór svo á SMD;d sem var fínt. Svenni sem er með þetta námskeið var ekki þannig að það var einhver kona sem heitir Dóra og hún var fin, var að kenna okkur að taka út svona bólur eða eitthvað þannig ef maður vill það og e’ð ;d 

En nenni þessu ekki lenguuur ;d

svo að ég kveð í bili, Ingibjörg


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.10.2007 04:38:29 / inga

;'d

já halló ;dlangaði svo að blogga eitthvað smá;p

ligg hérna upp í rúmi og bíð eftir að Auður komi, en hún var svo svöng að hún ákvað að fá sér eitthvað að borða ;’d kannski eins og einhverjir hafa tekið eftir þá er klukkan hálf fimm ;D

haha snilld, allavega dagurinn búinn að vera fínn, smá leti í gangi og klæddi mig ekki fyrr en 3, var bara í tölvunni og svo fór ég í smá búðir með múttu minni, svo buðu mamma og pabbi mér út að borða á Bautann sem var geðveikt gaman og mjög góður matur ;d og svo í esso að fá eftirmat, langaði ekki í eitthvað geðveikt gums sem var í boði á Bautanum.

Svo bara heim og taka mig til og svo til Auðar ;* Og er búin að vera hjá henni síðan hálf 9, búið að vera mikið kjaftað saman og svona  sem enginn á eftir að fá að vitaaa ;d haha Svo bara hanga á msn, éta nammi og eitthvað þanniiig ;d

Fengum rúmið hjá Mömmu hennar og pabba en pabbi hennar er í Rvk, og mamma hennar bara í rúminu hennar Auðar ;D

Hey nú er Auður komiin ;D

haha okay, en já það er geðveikt nææs, elskaa það, rúmiið sko ;*

Ligg upp í rúmi með fartölvuna og að blogga á meðan fékk  Auður sér kiwi og er að éta haustkex núna ;d haha lúðiii ;*

Já setti inn nokkrar myndir, ég og Auður smá að flippa ;o Eeen,  hef bara ekkert að segjaa ;| uppiskroppa með eitthvað til að skrifaa ;s haha

Heyrðu já, svo eru þessir blessuðu tónleika á eftir ;d haha málið að mæta veeel ferskur á þá (Y) haha ;’d hlakka ekki baun til ;s, en besta er að ég fæ þá frí í tímanum á mánudaginn ;d sem er næææs ;d

En er að pæla í því að leyfa Auði að klára að éta og kannski að fara sofa ? þar sem ég og Auður ætlum að vera duglegar og vakna klukkan 8!! sé það ekki gerast en, allt getur gerst ! haha;’d

En verð nú bara að skjóta því inn að ég og Auður erum svo gjörsamlega búnar að rústa Bjögga í vökukeppninni ;’d haha, já það  held ég allavega! hann ekki búinn að svara okkur síðan um korter yfir 2, og erum við enn vakandi núna ;d  hahah ;’d við erum bara bestar, totallyy ;d

Eeen Bless í biliii ;d

-Ingibjörg og Auðuur ;*           


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.10.2007 20:01:21 / inga

^^

okay eigum við að tala aðeins um að vera latari?

ligg hér upp í rúmi, með fartölvuna á föstudagskvöld, klukkan aðeins 8 og ég að sofnaa !jæjjaa,, okay búin að vera duglega að blogga? eða svona næstum þvíí ;dAllavega, veit aldrei hvað ég á að skrifa í bloggin mín;s allavega reynii eitthvað ;d sjáum svo hvað setur ;d

Allavega var ég alveg hryllilega lónelý í gærkveldi og fór að lesa einhverja stafsetningaorðabók! hversu gaman, er byrjuð á a og ætla að halda áfram þangað til að ég klára hana;d sjáum hvað það tekur langan tíma!komst að mörgu mjög spennandi t.d. afrakstu er að raka eitthvað af ! hverjum hefði getað dottið það í hug !? maður spyr sig;d haha og svo fyrir þá sem vita ekki hvernig á að beygja nafnið sitt, bara contacta miig og ég tékka á því ;d

haha allavega, vá er svo fegin að það er komin helgi, smá frí og svona.;d ég hef á tilfinningunni að þetta verður svona góð helgi bara held ég fyrir utan á sunnudaginn klukkan þrjú, en þarf að mæta á einhverja tónleika með KK ! já ég er svona varla að nenna því en ætli að maður verði ekki að gera það, þarf að skila einhverri umsögn um hvað mér fannst og eitthvað ;d fyrir tónlistarval sem ég er í.

En heyrðu bíður einhver sig fram í það að sitja fyrir á mynd hjá mér? þarf að taka einhverja andlitsmynd, og vantar model ?;d bara láta mig vita ef einhver nennir, helst fyrir þriðjudag.;’d

okay nenni ekki meira ;d

haha ;'d okay kann þetta ekki ;d

svo ein mynd af mér í lokin, góður dagur ;'d


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.10.2007 17:36:36 / inga

Snillingur kannski eðaa? ;'d

Jæjaaa.. eitt stykki blogg kannski? Allavega var bara að pæla, hversu misheppnaður getur maður verið!? Bara svona að spá, Auður veit alveg hvað ég er að skrifa um..:D

Haha allavega er ég búin að fá að heyra það frá móður minni að ég og ofnar eigum ekki saman! En þannig er mál með vexti að ég og Auður vorum að baka fyrir doltlu og ég náttúrulega kveikti bara á ofninum og ekkert mál, þangað til að ég lít inn í ofninn og sé eitthvað inn í honum og það er búið að vera kveikt á honum í þó nokkurn tíma.

En það sem var inn í honum reyndist vera skúffukaka og utan um formið var plast! Það bráðnaði náttúrulega, og festist í ofninum og ég næstum búin að eyðileggja ofninn, en eyðilagði nú alveg örugglega skúffukökuna! 

Svo um daginn, á sunnudaginn held ég ætluðum ég og Auður að vera mjög duglegar og elda og það átti að vera pasta og hvítlauksbrauð. Ég leit inn í ofninn og kveikti ljóstið aðeins inn í ofninum til að sjá betur hvort að það væri nú alveg örugglega ekki neitt inn í honum og svo bara bíðum við í smá stund og skellum svo brauðunm inn í þegar að pastað er alveg að vera til. Ekkert mál, nema þegar að hvítlauksbrauðin eru búin að vera of lengi og ég fæ sjokk og kippi þeim út, þá kemur það í ljós að brauðin eru enn frosin! Þá hafði snillingurinn ég ekki kveikt á ofninum bara ljósinu, því að ég var að skoða inn í hann!Misheppnað? Kannski! Haha ;’d

Já veit aldrei um hvað ég á að blogga?, nett leiðinlegt að blogga um hvað maður hefur gert síðustu daga og e’ð, en allavega er bara búin að vera með Auði síðustu daga, skóli og eitthvað bull! Svo er eitthver stelpuklúbbur í kvöld eða e’ð sem að ég er að pælaa í að fara á kannski?Eeeeen, vá veit ekkert um hvað ég á að skrifaa!? 

Okay langar að skrifa um soldið sem örugglega öllum er sama um, en skrifa það samt.Þeir sem þekkja mig vita kannski að mér finnst soldið gaman að taka myndir ;p Allavega, er á svona ljósmyndanáskeiði sem er valfag hjá mér í skólanum núna í einhverjar átta vikur allt í allt og er búin með einhverja 3 tíma eða svo.

En þó að þessir tímar séu kannski ekki alveg þeir skemmtilegust!! Þá finnst mér svona lúmskt gaman þegar að fólk er að dæma myndirnar manns og segja manni hvað maður á að gera og hvað ekki, veit ekki hvort að það sé bara ég eða ?

En nóg í bili er bara farin að tuða eitthvað sem enginn nennir að lesa! En ef þú kommentar þá ertu BEST/UR :D

Svo fylgja hérna nokkrar myndir frá því að ég og Auður vorum að flippa smá ;p

Auður smá einmanna ?
-
-
-
Ingibjörg Kveður :D

» 5 hafa sagt sína skoðun

29.09.2007 18:19:43 / inga

Loksins ;'d

Hææ ;*Já eins og sést er ég aðeins búin að gera á síðunni bæta inn myndum og svona ;D En mikið búin að gerast síðan 10.ágúst ! eða síðan að ég skrifaði seinast..! Man ekki alveg allt eftir tímaröð en ætla að punkta smá niður ;) 

* Fór til Rvk á menningarnótt sem var mjög gaman:D

* Skólinn byrjaði, ekki eins gaman en fínt að hitta alla krakkana aftur ;D

* Menningnótt hér á Akureyri eða Akureyravaka eða e'ð ;'d

*Auður og Svandís buðu mér og Sigurbjörgu í mat, geðveikt gaman :)

* Norskir krakkar voru hér í skólaferðalagi og við hittum þau, sem var bara mjög gaman ;’d hehe

*Síðuskólaballið var geðveikt skemmtilegt, norsku krakkarnir komu með okkur á það

 

*Búin að fara til Húsavíkur og hitta ástirnar mínar ;*

* Fór í Brúðkaup sem var mjög gaman ;)

*Rósaballið í Glerárskóla var því miður ekkert eitthvað spes, ágætt bara.

*Svo er það bara skólinn sem er alltaf jafn ,,skemmtilegur”  Vá man ekki meira.. var sko fuullt meira :/En reyni að standa miig í því að blogg og kannski skella inn myndum og e’ð;D 

Kannski að kommenta ef þið nennið ?:p

-Ingibjörg ;*


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.08.2007 00:03:25 / inga

komin hjem ;)

Jæja bara komin heiiim :) eftir að hafa verið í danmörku í rúmlega 70 daga !
Allavega seinustu dagarnir þarna í dk voru æðislegir, geggjað veður og bara geggjað :D hehe ótrúlega erfitt að fara og var byrjuð að sakna þeirra þegar að við fórum í strætóinn..
  Allavega ætla að skrifa smá ferðasögu hér ;), fyrir þá sem vilja lesa ? kannski enginn..:’)  Allavega vöknuðum klukkan korter í fimm að íslenskum tíma, (korter í 7, dk.) og kvöddum kristbjörgu og emil inga. Svo fór ég bara í sturtu og kláraði að taka til þetta seinasta og svo bara fórum við með strætó niður í árósa eftir rúmlega 40 mínúta akstur en vorum komin þangað eitthvað rúmlega 9 og keyptum okkur eitthvað smá og svo biðum við bara eftir lestinni og svo bara í lestina.
Allavega já 4 tímar í lest og vorum komin um 2 leytið að dönskum tíma, fengum okkur að borða og ætluðum að fara tékka okkur inn eeen þurftum að bíða í einhvern klukkutíma og svo áttum við að vera í þessari röð en svo allt í einu áttum við að fara í hina röðina en svo var allt í lagi að vera í hinni röðinni þannig að við fórum í hana sem var bara mjög fínt, allir hinir voru farnir í hina röðina ;) haha þannig að það var mjög stutt röð.
Svo bara að rékka inn, fórum svo í gegnum tollin ég er alltaf svo geðeikt hrædd við að fara í gegnum málmleitartækið :S veit ekki af hverju :S haha allavega svo var það bara fríhöfnin og svo smá að skoða og farið út í vél.
Gömul !
  Tæpir 3 tímar í flugvél sem virtist vera svona 10 tímar, var einhver bliiindfullur maður við hliðina á mömmu sem var alltaf að brosa til mín og eitthvað að spurja hvort að ég ætlaði ekki að drekka og eitthvað :S talaði sko ensku.. ógeðslega ógeðslegur!Allavega lentum um 6 leytið að íslenskum tíma og þá var farið beint til afa míns ;**Gaman að hitta hann :), svo bara heim að borða, svo til ömmu minnar ;**
 Svo heim að taka upp úr töskunum og svo kom Anna til mín :);* og við vorum bara eitthvað að spjalla og svona ;) svo bara fór hún og ég skrapp í tölvuna  og svo að hitta Auði mína ;* og svo hittum við líka Evu. Allavega fór heim fljótlega og bara taka aðeins til í herberginu svo að sofaaa :) næææs ;*
Allavega vaknaði eitthvað um 11 og í sturtu, svo til Sigurbjargar til að kveðja hana, hún er að fara til Majorka ;) skemmtu þér ;*Heim, til afa, í búðir, heim, Sunneva, Kristian, Eirin og mamma hennar og pabbi komu í heimsókn svo vorum ég og mamma að passa Sunnevu og Kristian og svo koma Aron og Ingimar líka í pössun en Sunneva og Kristian fóru svo heim og ég var bara að leika við strákana svo komu gestir og eitthvað og þeir fóru ;). Allavega fórum svo í heimsókn til Sigga frænda sem á afmæli. Er bróðir pabba og er akkurat 2 árum yngri en hann, en pabbi minn á líka afmæli í daag ;** til hamingjju en hann er einhver staðar í fjallaferð ;)
Guð þetta blogg er ömurlegt örugglega enginn sem nennir að lesa það.. er ekki um neitt eða neitt  :S haha :’) er bara farin að bulla, allavega koma nýjar myndir fljótlega ;)Kv,

Ingibjörg ;*

 Nokkrar símamyndir sem fylgdu þessu bloggi ;)

» 6 hafa sagt sína skoðun

31.07.2007 19:39:23 / inga

8 DAGAR !

Hæhæ ákvað að blogga smá þar sem það er nú soldið siðan að ég gerði það seinast :) hehe

 

En allavega ætla bara að segja frá sunnudeginum og þangað til núna :)

 

Sunudagur : já vaknaði eitthvað um 9 eða eitthvað og fór á fætur og í sturtu og svo lögðum við af stað um 12 leytið á leið til Ribe sem er bær í svo eins og hálfs tíma fjarlægð, ef maður fer rétta leið :’) haha allavega já við byrjuðum á því að keyra fram hjá því þar sem maður á að beyja og snérum því við, en þá var ekki hægt að beyja þar ! Allaveg keyrðum áfram og allt í lagi, beygðum eitthvað og þau héldu að við værum að fara til Kolding því að það hefði verið rétt leið en neii við vorum á leiðinni eitthvað annað, Þýskalands eða eitthvað ! hahah ég var ég hláturskrampa ! allavega þetta var geðveikt gaman, en komumst loksins og fórum á víkinga safnið þarna sem var bara mjög fínt sko, síðan ætluðum við að fara í einhverja kirkju en hún var lokuð svo að við fórum bara í dómkirkjuna og fórum upp í turninn sem var geðveikt hátt uppi og stigarnir hræææðilegir ! bara beint upp og úr tré, ég hélt að þeir væru að fara hrynja !

Allavega eftir það fórum við bara í heimsókn til föðurbróðurs Gulla sem býr í sveit rétt hjá Ribe, þar voru einhver dýr s.s. hundar, kindur og hestar. Það voru bara krúttlegir hvolpar þarna ! voru bara rétt um mánaðar gamlir algjörar rúsínuur :*

Svo var bara keyrt heim á leið og ég bara var að hreinsa kjúklinginn sem átti að vera í kvöldmat og eitthvað svo bara borðað og farið að sofaa ! var svo geðveikt þreytt.

 

mánudagur: vaknaði og var að passa til að verða 1 þá kom gulli heim en hann var eitthvað að laga gluggakistuna og svo að slá grasið svo að ég var með emil og vorum að skoða sætu froskana sem voru að þvælast í garðinum :) svo kom Kristbjörg bara heim og ég og gulli fórum að horfa á Wild hogs á meðan að Kristbjörg fór eitthvað að versla svo fórum ég og Kristbjörg að sækja mömmu ;*** var að sjá hana í fyrsta skipti síðan 27. maí ! sem sagt er ekki búin að  hitta hana í 64 daga eða rúmlega 2 mánuði  ! ótrúlega gaman að hitta hana:) svo bara heim að borða hamburgeeer :P svo bara eitthvað og að sofaa !

 

þriðjudagur: vaknaði fyrir hálf 8 og var að passa, svo fórum ég og mamma með emil í göngutúr um hálf 10 og eitthvað svo bara vorum við hérna heima að laga til og spjalla og svona þangað til að kristbjörg kom heim um hálf 3, þá fórum við í hinnerup og í bókabúðina þar sem að ég fékk pennaveski, 2 blokkir svona flottar, og einhverja 48 penna sem voru saman í pakkaa :D gegt happy með það;)  svo bara aftur heim og eitthað að leika við emil og meira svo bara lág ég upp í rúmi og las því að ég er að drepast í rófubeininu af einhverjum óljósum ástæðum ! en lagði svo á borð og svo var borðað íslenskt lambalæri sem mamma kom með ;)

Svo bara eitthvað að spjalla og svo fór ég í sturtu áðan og svo að skrifa þetta :)

 

En svo er planið á morgun að fara í bæinn , ég og mamma og VERSLA :D hehe hlakka geðveikt tiil :P

Allavega reyni að blogga aftur fljótlegaa ;)

 

8 dagar þangað til að ég keem heiiim ;*

sakna ykkar allra ;*

 

Kær kveðja  

-Ingibjörg


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.07.2007 10:26:39 / inga

15 dagar..!

jæja kannski smá blogg ?

 
 elska þessa mynd <3:*

jamm bara 15 dagar þangað til að ég kem heim, bæði góðir kostir og vondir kostir við það..

sakna allra þarna heima alveg geggjaðslega og hlakka rosalega til að hitta alla en svo bara er svo gott að vera hérna og á eftir að sakna Kristbjargar, Gulla og Emils. Búin að upplifa svo mikið hérna, fyrstu skrefin hans Emils, og svo er það náttúrurlega svo mikið sem er hérna sem er ekki heima, sá t.d. bara hérna í gær þegar að við vorum að keyra og fórum svo í skógarferð þar sem að við sáum villta bamba og fuullt af pínulitlum sætum froskum sem ég var geðveikt hrædd um að stíga ofan á :S haha já og um daginn fórum við í annan skóg og þar sá ég íkorna og mýs og eitthvað.

Svo náttúrulega allt hitt, ströndin, bambagarðurinn ( þar sem eru fullt af bömbum lausir), tivoli, legoland, rander regnskov, og bærinn þar sem eru fuulllt af búðum.!

En já er mjög fegin að ég ákvað að koma hérna út, samt stundum sem ég hefði alveg verið til í að vera heima eins og í gær þá var litli Kristian Emil skírður ;* til hamingju sætiii ;* og svo nokkrir búnir að eiga afmæli s.s. anna magga, svandís og afi svo fáir séu nefndir.

 

Sumarið búið að vera fljótt að líða, finnst svo stutt síðan að ég kom hingað, en bara að fara byrja í skólanum 2 vikum eftir að ég kem heim, veit ekki hvort að ég hlakki til eða hvað ?, hlakkar til að hitta alla krakkana en alls ekki að byrja að læra!

Vá hvað þetta á eftir að vera gaman núna..10 Bekkur (Y) eða vona það ;) kannski ekki að fara í samrænduprófin!

En er ekki að nenna að skrifa meira..

 

kveðja Ingibjörg


» 5 hafa sagt sína skoðun

17.07.2007 07:50:20 / inga

tíminn líður hratt..

jæja blogg hvernig væri það ?

allavega mikið búið að gerast..

Hemmi, Halldóra og Skírnir Ingi komu hérna á miðvikudaginn og er mikið búið að gerast, Kristbjörg var í fríi á fimmtudag og föstudag.

ætla að skrifa smá um seinustu daga..;D

 

 

Fimmtudagur ; Fór í bæinn en keypti mér nánast ekkert.. bara 2 spangir og sætan galla á Kristian Emil minn ;*, allavega farið heim og bara eitthvað man ekki alveg frá þessum degi, jú Skírnir og Emil léku sér úti mest allan daginn ;)

 

 

Föstudagur ; Það var farið í Randers regnskov þegar að Gulli kom heim en annars var bara haft það kósí hérna heima, Gulli og Hemmi fóru á tónleika þannig að það var bara stelpukvöld ;)

 

Laugardagur ; var farið í Tivoli Friheden sem var mjög gaman :) hehe strákarnir litlu fóru í nokkur tæki, og við stelpurnar líka. Svo var farið heim og grillað held ég því að það var svo gott veður.

 

Sunnudagur ;  Var geggjað veður ! fórum í legoland og snillingurinn ég gleymdi að setja sólarvörn á mig þannig að ég brann veel á bakinu ! En þetta var bara mjög góður dagur :)

 

Mánudagur ; var að passa Emil og við vorum bara eitthvað úti og svo svæfði ég Emil og fór í sólbaað enda snilldar veður. Kristbjörg kom heim eitthvað um hálf 1 og þá gerðu hún pasta og svo komu Hemmi og co líka og þá ætluðum við í bambagarðinn en voru engin bílastæði svo að það var ákveðið að fara niður á strönd og það var æðislegt, að liggja í sólbaði og fara að vaða í sjónum :D hehe

 

Þriðjudagur ; Já ekki mikið búið af honum en vaknaði klukkan 6 við að síminn hans Gulla var að hringja(vekjaraklukkan).! og var síminn ekki inni hjá honum og hann átti ekki að fara í vinnuna þannig að ég fór og slökkti og ætlaði að halda áfram að sofa en nei eftir 5 mín hringdi hann aftur og ég fór og ætlaði að slökkva og eyddi örugglega svona 10 mín í að fatta hvernig ætti að slökkva og fór svo að sofa aftur, en vaknaði til að vera með Emil á meðan að Gulli skutlaði Kristbjörgu í vinnuna. Allavega svo er ég bara eitthvað búin að vera gera ekki neitt? hehe Verður kannski eitthvað gert ? sjáum til ;)

 

En nóg í bili blogga kannski aftur seinna ;)

 

13 dagar í að mamma komi hingað til Dk. :D

22 dagar í að ég komi heiim :D:(?

kveðja Ingibjörg :) 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

14.07.2007 19:05:34 / inga

Nýtt !

Nýjar myndiiiiir ;D

 

vildi bara láta vita ;)

Kv. Ingibjörg Ásta :)

 

 

 

p.s. kemur blogg seinna :P


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.07.2007 22:14:39 / inga

07.07.07

Jæja rúmleg vika síðan seinast..!

 

En vil byrja á því að óska afa mínum innilega til hamingju með daginn ;* en já eru komnar nokkrar myndir þann 23. og 34.júní og eru á leiðinni fleiri.

en já á laugardaginn seinasta þá fórum við í Randers regnskov og var það rosalega gaman. Fullt af flottum dýrum sem búa í regnskógunum í Afríku og Asíu eða eitthvað, en eru myndir af því á leiðinni.

 

Svo um kvöldið pössuðum ég og Gunna Emil á meðan að Kristbjörg og Gulli skruppu út 

 

Á sunnudeginum fórum við í Legoland sem var bara rosalega gaman en kom alveg þessi hellidempa þannig að við keyptum svona gula regnslár sem voru náttla bara flottastar (Y) hehe NOT, en þetta var bara rosalega góð ferð

 

Allvega á mánudeginum vorum við held ég bar heima eða eitthvað man ekki alveg þessa vikuna, en allavega man að Emil tók sín fyrstu skref núna á miðvikudaginn, var að labba á milli mín og Kristbjargar. :D :D

 

En allavega í gær var ég að passa frá hálf 7 en emil svaf til 5 mínútur yfir 7 og svo kúrðum við til hálf 8 :) það er bara best að kúra með honum eða að fá knús frá honum, fór í sturtu með honum fyrstu vikuna sem ég var hér og hann knúsaði mig allan tímann ekkert smá notarlegt :P

 

Vaknaði í morgun einhvern tíman allaveg fór á fætur um hálf 10 og klæddi mig og gerði mig smá fína og tók svo strætó inn í hinnerup um hálf 11 og fór til Kristbjargar sem var í klippingu og þannig, allaveg beið á meðan að hún var þarna og ætluðum svo að taka lest inn í århus en náðum ekki lestinni svo að fórum bara í bókabúðina og skoðuðum bara í smá stund og svo kom Gulli að sækja okkur og við fórum heim og fengum okkur að borða og tókum svo strætó inn í árósa og fórum í búðiiir :D

vá maður hvað það er gaman að versla allavega keypti mér eina gallabuxur, gloss, eyrnalokka, naglaþjöl, 4 dvd myndir sem kostuðu um 2000 kr. ísl ! geðveikt lítið ! og keypti líka smá á Sunnevu mína ;*

En er búin að kaupa mér alveg slatta áður t.d. kawasaki skó,sandala, 2 buxur, peysu, 6 boli, nokkur nærföt, skyrtu og eitthvað fleira ;)

 

En svo bara áðan fór ég með Gulla niður í bæ og á einhverja hátið og það var bara rosalega gaman, fullt af fólki og hittum Krissa og Selmu og löbbuðum þar um í smá stund og svo fórum við að bílnum og þá kom flugeldasýning og svo bara fórum við heim og ég fór að taka mig til fyrir háttin og svo að klára að gera þetta blogg :D en held að  ég fari að drífa mig í háttin komið miðnætti hér ;)

 

Kær kveðja

-Ingibjörg :P

 

 

 

 

sorry eru engar myndir með þessu bloggi en set inn myndir á síðuna sem fyrst ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Leitarbox